Terms of service

Almennir skilmálar

Vinsamlega lestu yfir viðskiptaskilmála okkar áður en þú verslar í vefverslun okkar. Með því að versla við vefverslun okkar samþykkir þú þessa skilmála.

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Fyrir allar vörur sem dreift er af Dropp, gilda afhendingar- ábyrgðar og flutningskilmálar Dropp fyrir afhendingu á vörunni. SOLA Padel ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Sé vara uppseld eða önnur atriði tefja afgreiðslu pöntunar er haft samband við viðskiptavin eins fljótt og hægt er, með upplýsingum um hvenær pöntun verður afgreidd og með hvaða hætti.

Vöruskil

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneigninarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Viðskiptavinur ber beinan kostnað af því að skila vöru og ber ábyrgð á að koma vörunni til SOLA Padel. Fyrir vöruskil skal senda fyrirspurn á sola@solapadel.is.

Vörugalli

Tilkynningar um galla eða skemmdir skal senda á sola@solapadel.is. SOLA Padel áskilur sér þann rétt að meta hvert tilfelli fyrir sig. Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum ef þess er krafist.

Persónuupplýsingar

SOLA Padel heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Við deilum ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila nema til að uppfylla þá þjónustu sem þú hefur viðskiptavinur hefur valið, t.d. til að uppfylla óskir um heimsendingarþjónustu.

Gildistími og fyrirvari um breytingar/villur

Allar upplýsingar á vefnum eru birtar með fyrirvara um breytingar. Verð á vefnum er birt í íslenskum krónum og er virðisaukaskattur innifalinn í verðinu. Verðbreytingar eru ekki auglýstar fyrirfram. SOLA Padel áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

Skilmálar þessir eru gefnir út af SOLA Padel og gilda frá og með 20. desember 2025 og til þess tíma er nýir skilmálar taka gildi.